Þjónusta við útgefendur


Við hjá VBM þjónustum og styðjum útgefendur og fjárfesta með öruggri og rafrænni eignarskráningu verðbréfa, hvort sem um ræðir hlutabréf, skuldabréf, víxla eða hlutdeildarskírteini og hvort sem verðbréfin eru skráð í kauphöll eða ekki.  Við leggjum áherslu á skilvirka og örugga ferla.


Rafræn skráning verðbréfa í Verðbréfamiðstöð Íslands tryggir lögformlega staðfestingu á eignarhaldi og tengdum réttindum. Þetta eykur öryggi fjárfesta og stuðlar að faglegri og traustri skráningu fjármálagerninga.


Fjárfestar geta á einfaldan hátt fylgst með eignum sínum og viðskiptum í netbanka og séð stöðu sína skýrt í árslok, t.d. í upplýsingum til Skattsins. Fyrir stjórnendur felur skráningin í sér einfaldara utanumhald og minni handavinnu.


Í rafræna skráningarkerfinu okkar eru m.a. hlutabréf, skuldabréf og víxlar færð á öruggan hátt. Uppgjör verðbréfaviðskipta verður formfast, einfalt og öruggt ferli. Hluthafaskrá er alltaf uppfærð í rauntíma og fyrirtækjaaðgerðir eins og arðgreiðslur, hlutafjárbreytingar og bréfaskipti eru framkvæmdar með öruggum og skilvirkum hætti.


Rafræn skráning er einnig forsenda þess að verðbréf megi skrá í kauphöll og eiga viðskipti á skipulögðum markaði. 

Skilvirk og örugg þjónusta

Ferlið við skráningu í verðbréfamiðstöð:

  1. Stjórn félagsins ákveður að skrá verðbréf hjá VBM.
  2. Gerður er útgáfusamningur ásamt útgáfulýsingu við VBM.
  3. Útgefandi lætur VBM hafa hluthafalista með stöðum hvers og eins.
  4. Ákveðið hvenær skráning á að taka gildi.
  5. VBM sér um samskipti við viðskiptabanka vegna skráningarinnar.


Samkvæmt 27. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög er heimilt samkvæmt ákvörðun stjórnar félagsins að gefa út hlutabréf með rafrænum hætti í verðbréfamiðstöð í samræmi við lög um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignaskráningu fjármálagerninga.


Samkvæmt hlutafélagalögum eru ákvarðanir um rafræna skráningu félags og því eðli málsins samkvæmt einnig afskráningu, í höndum stjórnar félags.

Útgáfusamningur og útgáfulýsing

Þegar verðbréf (hlutabréf, skuldabréf og víxlar) eru skráð í verðbréfamiðstöð er gerður útgáfusamningur og gefin út útgáfulýsing.


Við undirritun útgáfusamnings er útgáfan stofnuð í kerfum VBM. VBM ábyrgist að skráningar á réttindum yfir verðbréfum útgefenda séu í samræmi við skráningarfærslu viðskiptabanka.


Útgáfusamningurinn og útgáfulýsingin eru lögð til grundvallar skráningunni. Í útgáfusamningi koma fram auðkenni útgáfu og önnur skilyrði sem varða útgáfuna. Allar breytingar á útgáfusamningi eða útgáfulýsingu þarf að tilkynna til VBM.


Ávinningur af rafrænni eignaskráningu verðbréfa í verðbréfamiðstöð fyrir félög og sjóði liggur í lögformlegri staðfestingu á eignarhaldi og réttindum. Skráning bréfa einfaldar vinnu stjórnenda og fjárfestar sjá eignir sínar og hreyfingar í netbanka og áramótastöður hjá skattinum.


Ef verðbréf eru þegar skráð í aðra verðbréfamiðstöð aðstoðar VBM við að færa þau til VBM svo útgefendur geti notið hagstæðari verða.

Hluthafaskrá og fyrirtækjaaðgerðir

Hjá VBM geta útgefendur verðbréfa (hlutabréfa, skuldabréfa og víxla) nálgast uppfærða hluthafaskrá og fengið aðstoð við allar fyrirtækjaaðgerðir.


Hluthafaskráin geymir allar upplýsingar um hluthafa og hún uppfærist í rauntíma í samræmi við viðskipti með bréf í félaginu eða sjóðnum. Skrá yfir hluthafa er einnig tengd við þjóðskrá svo heimilisföng uppfærast daglega.


Einfalt er að framkvæma fyrirtækjaaðgerðir í samstarfi við VBM m.a.:


  • Arðgreiðslur frá hlutafélagi til eigenda fyrir milligöngu reikningsstofnana.
  • Vaxtagreiðslur og afborgunum frá útgefendum til eigenda fyrir milligöngu reikningsstofnana.
  • Hækkun og lækkun á hlutafé.
  • Aðrar fyrirtækjaaðgerðir í samræmi við beiðni útgefanda.


Auk þess er auðvelt aðgengi að hreyfingalistum og stöðulistum fyrir félagið og einstaka hluthafa. Hluthafar sjá upplýsingar um bréfin og stöðuna í heimabanka og hjá skattinum.


Hjá VBM er hægt að fá gögn fyrir hluthafafundi:


  • Uppfærða hluthafaskrá miða við síðustu hreyfingar
  • Hreyfingalista
  • Stöðulista