Starfsemi VBM


Við hjá VBM  þjónustum og styðjum útgefendur og fjárfesta með öruggri og rafrænni eignarskráningu verðbréfa, hvort sem um ræðir hlutabréf, skuldabréf, víxla eða hlutdeildarskírteini og hvort sem verðbréfin eru skráð í kauphöll eða ekki.  Við leggjum áherslu á skilvirka og örugga ferla.  Rafræn skráning verðbréfa í Verðbréfamiðstöð Íslands tryggir lögformlega staðfestingu á eignarhaldi og tengdum réttindum. Þetta eykur öryggi fjárfesta og stuðlar að faglegri meðferð fjármálagerninga.

Rafræn eignaskráning verðbréfa

Verðbréfamiðstöð Íslands þjónustar útgefendur og fjárfesta með öll verðbréf (hlutabréf, skuldabréf, víxla og hlutdeildarskírteini, einnig þau sem ekki eru skráð í kauphöll) með rafræna skráningu bréfa. VBM rekur verðbréfauppgjörskerfi sem tengt er við Seðlabanka Íslands, Arion banka, Íslandsbanka og Landsbanka. VBM er í eigu íslenskra lífeyrissjóða og banka.

Ávinningur af skráningu í VBM

Með skráningu verðbréfa hjá VBM færðu skýra og lögformlega staðfestingu á eignarhaldi og réttindum. Þú sem fjárfestir sérð eignir þínar og allar hreyfingar beint í netbankanum og hjá skattyfirvöldum – allt á einum stað. Skráning tryggir meira öryggi og stuðlar að faglegum og gagnsæjum viðskiptum með verðbréf. Ferlið er einfalt, öruggt og fer fram í formlegu umhverfi.


Hluthafaskráin er alltaf uppfærð samkvæmt nýjustu hreyfingum, og í kerfinu okkar er hægt að framkvæma allar helstu fyrirtækjaaðgerðir á öruggan og skilvirkan hátt.

VBM með starfsleyfi á EES svæðinu

The Association of Global Custodians Questionnaire 2023-2024

Verðbréfamiðstöð Íslands (VBM) starfar samkvæmt lögum nr. 7/2020 og hefur fengið starfsleyfi sem gildir á öllu Evrópska efnahagssvæðinu (EES). Starfsleyfið á EES opnar ýmis tækifæri – bæði fyrir VBM og íslenska markaðinn. Við stefnum á að tengjast öðrum verðbréfamiðstöðvum í Evrópu og með því munum við:                                                                     

  • Auka aðgengi erlendra aðila að íslenskum verðbréfamarkaði.
  • Einfalda Íslendingum viðskipti með verðbréf sem gefin eru út innan EES. 
                 

Þessar tengingar styrkja stöðu Íslands í alþjóðlegu samhengi og gera fjármálaviðskipti bæði sveigjanlegri og aðgengilegri.   

Skipurit

Árlega sendir VBM inn spurningalista fyrir Samtök alþjóðlegra vörsluaðila (e. Association of Global Custodians) um innlánaupplýsingar. Samtök alþjóðlegra vörsluaðila eru hópur 12 fjármálafyrirtækja sem veita verðbréfavörsluþjónustu og eignaþjónustu til stofnanafjárfesta sem starfa yfir landamæri um allan heim. 


Sækja AGC spurninga listann

Hér má sækja starfskjarastefnu VBM

Starfskjarastefna VBM (pdf)


Hér má sækja starfsreglur stjórnar VBM

Starfsreglur stjórnar VBM (pdf)


Hér má sækja Ársreikning VBM

Ársreikningur VBM 2023 (pdf)