Eftir Halldóra Guðrún Hinriksdóttir
•
13. október 2025
Verðbréfamiðstöð Íslands stóð fyrir morgunráðstefnu síðastliðinn þriðjudag um aðgengi íslenskra fyrirtækja að norrænum fjárfestum. Ráðstefnan var þétt setin en um 110 manns, vítt og breitt úr atvinnulífinu tóku þátt í ráðstefnunni. Markmið ráðstefnunnar var að kynna samstarf Verðbréfamiðstöðvar íslands við DNB Carnagie sem opnar á þann möguleika á að skrá íslensk fyrirtæki í Euronext kauphöllina í Osló. Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra opnaði ráðstefnuna og talaði þar um mikilvægi opinna og alþjóðlegra viðskipta. Hann sagði mikilvægt að rými væri fyrir samkeppni á smáum markaði líkt og á Íslandi og það væri best tryggt með auknu og virku aðgengi fyrirtækja að erlendum fjármálamörkuðum. Birna Einarsdóttir, stjórnarformaður VBM setti tóninn og fór stuttlega yfir sögu og markmið verðbréfamiðstöðvarinnar en hún var stofnuð með það að markmiði að skapa samkeppni um skráningar og bæta kjör fyrirtækja sem hyggjast skrá sig á markað. Næst tók til máls Halldóra Guðrún Hinriksdóttir, framkvæmdastjóri VBM og fór hún yfir þau fjölmörgu tækifæri sem felast í því að opna aðgengi íslenskra fyrirtækja að erlendum hlutabréfamörkuðum á einfaldan og öruggan hátt. Halldóra fór einnig yfir líkindi markaða Noregs og Íslands sem er megin ástæða þess að Verðbréfamiðstöðin valdi sérstaklega samstarf við norska aðila. Á ráðstefnuna voru mættir sérfræðingar frá DNB Carnagie, sem er ein stærsta fjármálastofnun á Norðurlöndunum þeir Nicolai A. Christensen og Kai Bamberg. Þeir kynntu skráningarferlið og þau praktísku atriði sem vert er að hafa í huga fyrir skráningu í Euronext kauphöllina. Þá kynnti Eirik Høiby Ausland, frá Euronext kauphölllinni í Osló starfsemi Euronext í Evrópu, en um er að ræða stærstu samstæðu kauphalla í Evrópu. Erik kynnti þá sérstöðu sem Euronext Oslo Børs hefur en kauphöllin er leiðandi vettvangur fyrir fyrirtæki í orku, skipaútgerð, sjávarútvegi og laxeldi. Hann sagði samstarfið veita íslenskum fyrirtækjum á öllum vaxtastigum aðgang að fjölbreyttum hópi fjárfesta og getur orðið lykilvettvangur til alþjóðlegs vaxtar. Að lokum stýrði Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri Arion banka panel umræðum um tækifærin sem fylgja auknum sýnileika íslenskra fyrirtækja gagnvart norrænum fjárfestum þar sem Eirik Høiby frá Euronext Osló, Orri Hauksson, stjórnarformaður First Water, Helga Valfells, stofnandi og starfandi meðeigandi, Crowberry Capital og Birna Margrét Olgeirsdóttir, Head of International Securities Sales, Íslandsbanki tóku þátt í umræðum. Euronext Oslo Børs DNB Carnegie Eirik Høiby Ausland A. Nicolai Christensen Birna Einarsdóttir Iða Brá Benediktsdóttir Daði Kristófersson Kai Roger Bamberg Hans Martin Male