Access to Nordic investors

Iceland Securities Depository (VBM) is a member of Euronext Oslo Børs through its partnership with DNB Carnegie. Listing securities on Euronext enables Icelandic companies to increase their visibility among Nordic investors.

A secure choice for securities registration


At VBM, we serve and support issuers and investors by providing secure electronic registration of securities, whether shares, bonds, bills or unit certificates, and whether or not the securities are listed on a stock exchange.

We focus on efficient and secure processes, while providing flexible services to investors and security holders.

A trusted and independent choice


Since its establishment, VBM has focused on being an independent and efficient choice for investors and securities holders. Our role is to provide secure registration, safekeeping and settlement of electronic securities. That means you can rely on a simple and efficient system that suits your operations and issuance.

Services

Key player in the financial markets


VBM plays a key role in the country's financial infrastructure. We provide secure and efficient settlement execution for participants in VBM's settlement system, whether transactions take place on or off an organised market. Our robust settlement system and agreement with the Central Bank of Iceland ensure that every registration is processed quickly and securely.

We carry out securities settlements in accordance with the trading instructions of our clients connected to VBM’s systems.

News and announcements

By Björgvin Helgi Jóhannsson • June 9, 2026
Verðbréfamiðstöð Íslands (VBM) hefur gert aðildarsamninga við fjármálafyrirtækin T Plús og Kviku banka. Með samningunum hafa nú öll íslensk fjármálafyrirtæki og verðbréfafyrirtæki aðgang að VBM og geta átt viðskipti í gegnum kerfi félagsins en viðskiptakostnaður er um helmingi lægri hjá VBM. Samningarnir marka mikilvægan áfanga í uppbyggingu VBM og einfalda val útgefenda á verðbréfamiðstöð. Útgefendur sem skrá verðbréf hjá VBM þurfa nú ekki að horfa til þess hjá hvaða fjármálafyrirtæki fjárfestar þeirra eru í viðskiptum, þar sem markaðsaðilar hafa aðgang að VBM og geta átt viðskipti með verðbréf sem þar eru skráð. „Þetta eru mikilvæg tímamót fyrir VBM og íslenskan fjármálamarkað. Með aðild T Plús og Kviku banka er aðgengi markaðsaðila að VBM orðið mjög víðtækt. Fyrir útgefendur þýðir þetta að val á verðbréfamiðstöð verður einfaldara og skýrara og þeir geta valið hagkvæmasta kostinn. Það skiptir því ekki lengur máli hvort fjárfestar eru í viðskiptum við einn banka eða annan, allir helstu aðilar geta átt viðskipti í gegnum VBM,“ Einar Örn Davíðsson, framkvæmdastjóri félagsins . „Með víðtækara aðgengi fjármálafyrirtækja og verðbréfafyrirtækja að kerfum VBM skapast aukin samkeppni og sveigjanleiki fyrir útgefendur. Félög sem hyggjast gefa út eða skrá verðbréf geta þannig horft til þjónustu, verðs og skilvirkni við val á verðbréfamiðstöð, frekar en tæknilegra takmarkana á aðgengi markaðsaðila, segir Einar Örn. Nánari upplýsingar veitir: Einar Örn Davíðsson, framkvæmdastjóri VBM Sími: 777 1100 Netfang: eod@vbm.is
By Halldóra Guðrún Hinriksdóttir • October 13, 2025
Verðbréfamiðstöð Íslands stóð fyrir morgunráðstefnu síðastliðinn þriðjudag um aðgengi íslenskra fyrirtækja að norrænum fjárfestum. Ráðstefnan var þétt setin en um 110 manns, vítt og breitt úr atvinnulífinu tóku þátt í ráðstefnunni. Markmið ráðstefnunnar var að kynna samstarf Verðbréfamiðstöðvar íslands við DNB Carnegie sem opnar á þann möguleika á að skrá íslensk fyrirtæki í Euronext kauphöllina í Osló. Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra opnaði ráðstefnuna og talaði þar um mikilvægi opinna og alþjóðlegra viðskipta. Hann sagði mikilvægt að rými væri fyrir samkeppni á smáum markaði líkt og á Íslandi og það væri best tryggt með auknu og virku aðgengi fyrirtækja að erlendum fjármálamörkuðum. Birna Einarsdóttir, stjórnarformaður VBM setti tóninn og fór stuttlega yfir sögu og markmið verðbréfamiðstöðvarinnar en hún var stofnuð með það að markmiði að skapa samkeppni um skráningar og bæta kjör fyrirtækja sem hyggjast skrá sig á markað. Næst tók til máls Halldóra Guðrún Hinriksdóttir, framkvæmdastjóri VBM og fór hún yfir þau fjölmörgu tækifæri sem felast í því að opna aðgengi íslenskra fyrirtækja að erlendum hlutabréfamörkuðum á einfaldan og öruggan hátt. Halldóra fór einnig yfir líkindi markaða Noregs og Íslands sem er megin ástæða þess að Verðbréfamiðstöðin valdi sérstaklega samstarf við norska aðila. Á ráðstefnuna voru mættir sérfræðingar frá DNB Carnegie, sem er ein stærsta fjármálastofnun á Norðurlöndunum þeir Nicolai A. Christensen og Kai Bamberg. Þeir kynntu skráningarferlið og þau praktísku atriði sem vert er að hafa í huga fyrir skráningu í Euronext kauphöllina. Þá kynnti Eirik Høiby Ausland, frá Euronext kauphölllinni í Osló starfsemi Euronext í Evrópu, en um er að ræða stærstu samstæðu kauphalla í Evrópu. Erik kynnti þá sérstöðu sem Euronext Oslo Børs hefur en kauphöllin er leiðandi vettvangur fyrir fyrirtæki í orku, skipaútgerð, sjávarútvegi og laxeldi. Hann sagði samstarfið veita íslenskum fyrirtækjum á öllum vaxtastigum aðgang að fjölbreyttum hópi fjárfesta og getur orðið lykilvettvangur til alþjóðlegs vaxtar. Að lokum stýrði Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri Arion banka panel umræðum um tækifærin sem fylgja auknum sýnileika íslenskra fyrirtækja gagnvart norrænum fjárfestum þar sem Eirik Høiby frá Euronext Osló, Orri Hauksson, stjórnarformaður First Water, Helga Valfells, stofnandi og starfandi meðeigandi, Crowberry Capital og Birna Margrét Olgeirsdóttir, Head of International Securities Sales, Íslandsbanki tóku þátt í umræðum. Euronext Oslo Børs DNB Carnegie Eirik Høiby Ausland A. Nicolai Christensen Birna Einarsdóttir Iða Brá Benediktsdóttir Daði Kristófersson Kai Roger Bamberg Hans Martin Male
By Stefán Jónsson • September 22, 2025
Nepsone ehf. hefur skráð hlutabréf félagsins rafrænt hjá Verðbréfamiðstöð Íslands hf. ( VBM) og fær með því lögformlega staðfestingu á eignarhaldi og réttindum fyrir fjárfesta auk þess sem skráning í verðbréfamiðstöð einfaldar vinnu stjórnenda og fjárfestar sjá eignir sínar og hreyfingar í netbanka. ,,Við erum mjög ánægð að hafa valið að skrá hlutabréf félagsins hjá VBM “ Sigurður Berntsson, fjármálastjóri Nepsone ehf.
Fleiri fréttir